Ađalvalmynd

Prófíll

  • Nafn: Olga Ingrid Heiđarsdóttir
  • Stađur: Reykjavík
  • Kyn: kvk
  • Um mig: A question that sometimes drives me hazy: am I or are the others crazy? -- Albert Einstein

Auglýsing

Ómissandi leikir!

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Ţennan mánuđ: ...
  • Frá upphafi: ...

Myndablogg :)

05. maí 2009 klukkan 17:30
Í þetta skipti fengum við þau skilaboð að á mánudeginum ættum við að koma okkur burt frá skólanum og máttum ekki venda tilbaka fyrr en 24 tímum seinna.. Allt sem við fengum í hendurnar voru 20 kr á mann fyrir mat, plastdúkur, reipi og prímus. Þetta er útkoman :)

Lagt í hann frá skólanum :)

 

Til að vera svoldið hugmyndaríkar ákváðum við að fara í flöskuleit og safna þannig pening fyrir meiri mat. Þetta er það fyrsta sem við fundum - takið eftir 11 krónunum, sem við fundum á jörðinni.. :P

 

Tja, maður leggst ansi lágt fyrir ferðasúkkulaðið ;)

 

Græddum heilar 19 krónur á flöskuleitinni, auk þessara 11 sem við fundum :P

 

Fengurinn!

 

Hér skulum við búa - og svo var eldaður hádegismatur, núðlur í tonnatali!

 

Svo var rifist aðeins við tréin, sem vildu ekki fórna sér fyrir "gapahuggen" okkar..

Sögin mín trygga, en litla koma til aðstoðar!

Eftir ákveðið langa tíma.. fékk ég mínu framgengt!

ELSKU buksurnar mínar fengu að kenna á því þegar tréin ákváðu að hefna sín! :( Ætlaði ekki að trúa þessu! :(


Fyrsta tilraun, vorum ekki alveg sáttar..

 

Þannig að að lokum vorum við komnar með veggi og auka þak :)

 

...svo var að finna sé eitthvað að gera - eitt af því "Tree surfing"

 

..annað - Könglastríð!

..og könglahafnabolti! :D

Morguninn eftir vöknuðum við svo ferskar! Og okkur til allrar furðu, þurrar og allt annað en kaldar! - eftir heila nótt með rigningu og hagléli þá hefði maður búist við öðru ;)

 

Morgunmatur - Núúúðlur! :D


Búnar að pakka saman og tilbúnar í heimferð! :)

 

Hoppumyndirnar alltaf vinsælar :) Góða skapi á leiðinni með heim allavegana :P

 

Sorglegt en satt, þá er skólaárið á enda..  en við erum ekki búin enþá og við sjáum hvað meira spennandi gerist núna undir lokin! Annars verð ég að segja að ég hlakka oggu ponsi lítið til að komast heim á klakann aftur :P

 

Olga

 



 

Olga Ingrid Heiđarsdóttir

Ćtlađi ađ reyna ađ skrifa eitt stykki djúpt blogg...

15. apríl 2009 klukkan 22:50
..en eftir að hafa starað á skjáinn allt of lengi án þess að koma upp orði ákvað ég að skrifa bara svona "ég er á lífi" blogg. :)

Já, ég er sem sagt á lífi. Komin tilbaka frá Egyptalandi, aftur í skólann, farin úr skólanum aftur í páskafrí og komin, enn og aftur, tilbaka í skólann. Ég hef aldrei áður upplifað skólaár með svona miklum fríum. Finnst ég alltaf vera að ferðast fram og tilbaka frá litla, krúttlega húsinu í Vikedal, sem er í senn svo kósý en svo spooky :P

Eftir að hafa komið heim úr hitanum í Egyptalandi var okkur hent beint út í ískaldan sjóinn í Noregi! Ég surfaði eins og ég hefði aldrei surfað áður, sem ég hef auðvitað ekki gert, og eftir tvo langa daga í sjónum með tilheyrandi slagsmálum við öldurnar og brettið, þá var ég orðin helmingi flinkari en flóðhestur á brimbretti.. sem sagt alveg jafn léleg og þegar ég byrjaði :P Auk þess að eitt skiptið missti ég stjórnina á brettinu mínu, sem ákvað svo að ráðast á mig, þar sem það kom á fullri ferð tilbaka og ég fékk kantinn á brettinu beint yfir hálsinn og drukknaði aðeins. Þegar ég loksins kom mér upp úr sjónum og fékk andann aftur, þá gat ég ekki talað - örugglega mörgum til mikils léttis. Ég er nefnilega orðin svo góð í norsku að ég er farin að segja brandara af og til.. og allir sem þekkja mig vita hvernig það fer. :P

Jájá, mér tókst alveg ágætlega að liggja á brettinu..:P

Til að sjá til þess að við værum nú alveg örugglega kæld niður eftir heitar 4 vikur í útlandinu vorum við næst send út í snjóinn, þar sem við áttum að sofa í tvær nætur. Eftir heimsins styrstu skíðaferð trömpuðum við á snjónum, skelltum upp tjöldum og byggðum veggi. Þegar kvölda tók vorum við komin með heljarinnar "base-camp". Vegna þess að það snjóaði stanslaust allan tímann gekk ekki að kveikja bál þannig að ef þér var kalt þá var þinn eini valkostur að "fara út" og skokka einn eða tvo hringi kringum campinn. Svo þarna vorum við 40 nemendur út í myrkrinu og snjónum, skokkandi um í hringi. :) Daginn eftir var svo tekin ákvörðum um að halda heim á leið seinni part dags vegna 14 blautra svefnpoka og engra þurra eldspýtna. :) Flestir voru fegnir þegar við skíðuðum tilbaka að bílunum eftir að hafa eytt seinni deginum í að grafa sig niður í snjóinn eða læfa sig í snjóflóðaleit. Ég hefði alveg getað verið þarna eina nótt í viðbót.. *ehm* eða það hefði kannski verið svoldið kalt.. eða.. *ehm* ég hefði svo sem alveg lifað það af. :P

Páskafrípáskafrípáskafrí... já, næst var páskafrí. Ég og Marina hoppuðum upp í flugvél sem flutti okkur til Bergen og næst rútu sem keyrði okkur til Vikedal. Eftir það er nú ei mikið að segja... 10 RÓLEGIR dagar með sjónvarpsglápi, stígvélaferðum og gífurlega frumlegum mat :)

Loksins bloggaði ég aftur.. og ég vona að fólk hafi ekki afskrifað mig enþá. Verð bara að viðurkenna að það var bara of mikið að blogga um Egyptalandsferðin, hefði aldrei getað stoppað ef ég hefði byrjað :P Ef þú vilt ferðasöguna þá er það bara að hafa samband og ég sagt þér hana... mundu bara að tæma dagskránna fyrst, því það gæti tekið smá stund. :D

Olga Ingrid
Olga Ingrid Heiđarsdóttir

Egyptaland...

07. mars 2009 klukkan 13:45

..er geggjad! Thad hefur verid einstaklega erfitt ad komast i netsamband thar sem vid hofum verid og oftast hefur ekki verid simasamband heldur. Nu thegar eg komst loksins i tolvu er thad halftimi a mann.. svo stutt og laggott verdur thad. :)
Byrjadi med thrja daga i eydimorkinni. Ridum a dromedorum (ekki kamel :P) cirka 8 tima a dag i steikjandi sol og hita. Svafum undir berum himni, pissudum bakvid steina og donsudum i kringum balid med infaeddum a kvoldin. Sturtan eftir thessa daga hefdi verid yndisleg ef thad hefdi verid vatn i henni :P
Var vel steikt i harsverdinum og uppetin af poddum eftir ferdina en i skyjunum yfir upplifuninni. Get varla lyst thvi hvernig thad er a liggja einhversstadar i Sahara a teppi a sandinum og horfa upp a stjornubjartann himinn adur en thu sofnar.





Eftir eina nott a hoteli med sturtu! :) i Kairo tok vid 12 tima rutuferd til Marsa Nakari. I 6 daga var thad sjor, salt og shisha sem var malid. Eg fekk tvo yndisleg mybit a augnlokid og leit thvi ut eins og quasimodo eftir hverja kofun thar sem thad atti til a bolgna pinu extra vid thrysinginn... I thessa 6 daga bjuggum vid i tjaldi a strondinni sem var yndislegt. Stort tjald med threm rumum og einni ljosaperu. Madur sofnadi i svarta myrkri vid nidinn fra sjonum. Komin med kafaraprof og a eftir a sakna folksins i Nakari! Oturlega spes a anda a 18 metra dypi verd eg a segja...

Nu erum vid i Aswan og holdum af stad i felukka ferd (sigla upp Nil) til Luxor. Tekur fjora daga og verdur abyggilega eins frabaert og allt annad!

Gaeti skrifad svo miklu meira og finnst eg ekki na ad koma thi i ord hvernig ferdin hefur verid. En nu stendur folk og bidur eftir ad eg er buin svo ..got to go :P

Olga Ingrid Heiđarsdóttir

Snjóóóbretti!! (og skíđi)

18. febrúar 2009 klukkan 22:26

Held að það sé best að byrja á einni eða tveimur myndum, sem segja allt sem segja þarf að mínu mati!




Þarna vorum við, egyptararnir og vatnafólkið, í þrjá daga á skíðum og snjóbrettum og höfðum það yndislegt! Ég var í himnaríki allan tímann sem ég var þarna. Hefði getað farið að grenja þegar við þurftum að fara, þrátt fyrir að það sem beið manns var Egyptalandsferðin!

Skólinn leigði skíða- og snjóbrettakennara, sem kom sér ekki illa fyrir íslendinginn sem gat varla staðið í lappirnar með skíðin smellt á. Fyrsta kvöldið fékk ég einn kennara útaf fyrir mig í fjóra tíma og kraftaverkin gerast, ég lærði að renna mér og sviga á skíðum! :O Næstu dagarnir fóru að mestu í snjóbrettið og fyrir ykkur sem fylgist með hefði án efa verið gaman að vera fluga á vegg í bústaðnum okkar á kvöldin, þar sem fólk sat hér og þar og brosti út að eyrum án þess að vita afhverju. Það var svo flott færi og flott veður að maður gat ekki annað en brosað allan sólarhringinn í þessa þrjá daga!


Erum við ekki flinkar :P


Annars hefur ýmislegt gert frá því ég kom aftur eftir jólafríið (man ekki hvort ég bloggaði eftir að ég kom tilbaka eða ekki og nenni ekki að tékka á því:P) Þriggja daga hlutverkaleikur í skólanum þar sem allir nemendurnir fluttust aftur í tímann til ársins 1832 í London. Ég var "Sandra Mariasson", íslenskur innflytjandi, sem sagði allt á íslensku fyrst og svo á norsku. Meðlimur í AA-samtökunum og fátækur jógakennari. Í þessa þrjá daga fengum við ýmis verkefni sem við áttum að leysa til að fá laun fyrir daginn til að kaupa mat. Þar sem ég var útnefnd fátæk frá byrjun hafði ég sjaldan efni á öðrum mat en brauði, smjöri og vatni og strax á öðrum degi voru garnirnar farnar að gaula og íslenski innflytjandinn með allan sinn sjálfsaga laumaðist niður í búð og keypti sér nugatti! :S Hefði getað lent í fangelsi fyrir það djarfa verk þar sem löggan laumaðist um og böstaði fólk, sem ekki hagaði sér. Nóttina áður en leikurinn var búinn vorum við öll vakin kl 03.00 þar sem "London" brann. Við vorum rekin niður að höfn þar sem búin var til manngarður sem flutti með sér fötur af sjóvatni upp að skólanum. Að lokum náðist að slökkva brunann, sem var í raun bara bál í grilli, og við fengum að fara aftur að sofa. Sérstök og spennandi tilbreyting á hverdaginum og ég verð að viðurkenna örlítið pirrandi að sitja við "fátæka borðið" með brauð og vatn horfandi á aðalinn japla á egg og laxi..
En lét mann hugsa, ekki geta þeir sem virkilega eru fátækir laumast út í búð og keypt sér nugatti (sem er súkkulaðiálegg fyrir þá sem ekki vissu það:P)

Eins og er sit ég í litla(stóra), sæta húsinu okkar í Vikedal. Mamma og pabbi voru svo góð að koma og halda mér félagsskap hérna í vetrarfríinu og svo fæ ég að fljóta með þeim til Osló þar sem ég á að mæta á flugvöllinn þar strax eftir vetrarfríið.

Næst á dagskrá: EGYPTALAND!!
Næsta miðvikudag verð ég komin út í eyðimörkina, sit á bakinu á kameldýri og gleypi sand! Kafandi í Rauða hafinu í heila viku og vappandi á milli staða í Dal Konungana! Við sjáum til hvort ég komist ekki alveg örugglega inn á netið inn á milli til að láta heyra frá mér.. :P

Olga Ingrid Heiđarsdóttir

Tölvan komin í lag :)

08. janúar 2009 klukkan 01:31
Lokins er tölvan mín komin aftur í lag og aftur get ég hafist handa við þann tímagleypir sem hún er... og jafnvel bloggað af og til. :) Enn og aftur ætla ég að gera tilraun til að skrifa styttra blogg þannig að ég geti mögulega hugsað mér að skrifa aftur á næstunni.

Síðan seinast hef ég keppt í sunddansi (og unnið btw..:P), æft mig á snjóbretti, komið á langþráða heimsókn heim til Íslands, haldið gleðileg jól og ferðast aftur til Noregs með tilheyrandi flugferðaveseni. 
Jólin heima einkenndust af vinnu og aftur vinnu, sem er auðvitað eitthvað sem ég þurfti á að halda þar sem að ég á að kallast fátækur námsmaður í stóra útlandinu. En eins og alltaf þá tókst okkur að halda jólin og það er alltaf jafn notalegt. Æðislegt að hafa Júlíu og fjölskyldu heima um jólin líka og fylgjast með litla kút fá hvern pakkann í fætur öðrum.. og ekki minnst minna hann aðeins á Olgu frænku sína svo hann gleymi mér nú ekki alveg. :) 
Ég heilsaði upp á fólkið í álverinu í eina syrpu milli jóla og nýárs og skundaði svo aftur í skólann þann 4.janúar.

Um leið og ég settist upp í flugvélina á leið til Oslóar var ég viss um að það myndi verða eitthvað vesen á leiðinni.. kannski vegna þess að fröken bjartsýn hér pantaði sér miða í innanlandsflug frá Osló til Örsta, sem átti að fara í loftið ekki nema 40 mínútum eftir að flugvélin sem færði mig frá Íslandinu góða lenti. Auðvitað varð seinkun á vélinni frá Íslandi þannig að þegar ég var loksins komin út voru ekki nema 20 mínútur í næsta flug. Ég hljóp móð og másandi að færibandinu þar sem taskan mín átti víst að hafa fengið sér meðferð til að koma henni sem fljótast í mínar hendur. En svo var ekki. Næst seinust kom ferðataskan mín góða og ég leit á klukkuna... 8 minutes to takeoff!
3 afar sveittum mínútum seinna náði ég að innritunarborðinu og kreisti út milli andkafanna að ég myndi gjarnan vilja komast með fluginu til Örsta. Þar fékk ég þær góðu fréttir að vélin væri "boarding complete" og komin í loftið. 5 MIN FYRIR TÍMANN!
Það eins sem mér datt í hug að segja var: "BÆSJ"

Eftir skemmtilegt samtal við ekki svo geðgóða SAS afgreiðslukonu komst ég að því að flugfélagið ætlaði að vera svo vingjarnlegt að leyfa mér að kaupa nýjann miða í næsta flug, daginn eftir... Fátæki námsmaðurinn sem ég er reyndi smjaður, grátur og tilraun til að selja sálu mína.. en ekkert gekk. Þar sem ég hafði keypt miðana í sitthvoru lagi á netinu, var ekkert hægt að gera! Ef ég hefði nú barið flogið til Osló og tilbaka til að kaupa mér miða í útibúi hefði þetta sko ekki verið vandamálið... ?! Ætli maður byggi sér ekki bara fleka og sigli heim næst :)

Þar sem ég á góða að bæði á Íslandi og í Noregi fann ég þá út eftir nokkur símtöl að það færi næturrúta frá flugvellinum til Örsta rúmlega klukkutíma seinna. Hún varð fyrir valinu og tók við ólýsanlega eirðarlaus 10 tíma rútuferð. Eftir að hafa lagt af stað frá Skipasundinu kl fjögur að norskum tíma komst ég loks á leiðarenda hingað í Örsta um hálf níu daginn eftir. Þá var vaðið snjóinn með farangurinn í eftirdragi upp að skóla og mætt beint í skólann. Talandi tungum hrundi ég svo í rúmið eftir gífurlega erfiða heimildarmynd, endalaus "gott nyttår og velkommen tilbake" knús og þó nokkrar tilraunir til að fá saumavélina í valfaginu til að hlýða mínum vilja... kl fimm um daginn.

Planið fram að vetrarfríi er fullbókað og verður spennandi að sjá hvort ég komist lifandi niður úr bröttum skíðaferðum og snjóflóðabjörgunarnámskeiðum. Svo heyrði ég tal um að bekkurinn ætti að halda vikunámskeið í útvist fyrir stóran hóp af fötluðu fólki... tja, maður prófar allt einu sinni!

Læt heyra í mér bráðum
Olga Ingrid

Nokkrar myndir:
 
Í labbitúr í blautbúningi..? 
Í labbitúr eftir heilan dag með köfun í sjónum :)

Skautaferð 
Vel innpökkuð á skautum =D Ég og Marina á myndinni.

.. 
Ég á líka górillugrímu sem kemur stundum að góðum notum :) 
Olga Ingrid Heiđarsdóttir

Don´t worry.. be happy :)

16. nóvember 2008 klukkan 20:38

Nú er liðinn svo langur tími síðan seinast að ég hef ekki hugmynd um hvar ég á að byrja..

Síðan seinast hefur snjórinn komið og farið, bjuggum til fyrsta snjórkarl vetrarins, sem fékk nafnið Ulfen Bubblemann.. af einhverjum undarlegum ástæðum. Í þeirri viku tók bekkurinn að sér sjálfboðavinnu í leikhúsi í einn dag. Þar söfnuðum við inn 6600 norskum krónum sem rennur til barnanna, sem Afríkubekkurinn heimsækir þegar við förum til Egyptalands. Hörkuvinna.. sem í fólst að bera leikmuni fyrir sýninguna „Little me“ út og inn úr leikhúsinu. Sviti, blóð og stórir marblettir fylgdu en flestir létu sig hafa það fyrir sveltandi börn í Afríku... já, flestir. Upp á síðkastið hefur mikið af tímanum farið í íþróttir. Skólinn tók þátt í fótboltamóti í Ulsteinvik, þar sem margir lýðháskólar mættu og kepptu í fótbolta. Lýðháskólinn í Ulsteinvik er kristinn skóli og eftir tvo daga þar var fólk komið með nóg af Halleluja og Amen söngvum og flestir voru fegnir að koma heim í okkar eiginn heiðna skóla. Viku seinna var eitt míní blakmót hér í skólanum þar sem við sem erum að æfa blak mættum einu strákaliði í nokkrum leikjum eina kvöldstund og.. þeir gjörsamlega rústuðu okkur! Ætti kannski ekki að nefna það, en strákarnir voru á aldrinu 9-11 ára. Vandræðalegt?
Hlakka þess vegna alveg gífurlega til að keppa í næsta blakmóti, sem er í næstu viku í Ålesund. Þar keppum við á móti jafnöldrum okkar, sem hafa væntanlega æft blak lengur en litlu greyin sem við kepptum fyrst á móti. Þar af leiðandi býst ég ekki við neinum stórsigrum... úff. Við erum þó búin að æfa á hverju kvöldi seinustu tvær vikurnar og ég verð því miður að segja að það liggur við að maður fái ógeð... hef ekki orðið blá og marin á höndunum útaf blaki síðan eftir allra fyrstu æfingarnar, fyrir mörgum árum síðan, fyrr en nú. Í þetta skipti erum við samt ekki blanda af öllum sem æfa blak hér í skólanum heldur valdi þjálfarinn út þá sem hann fannst vera tilbúin til að keppa. Vonum að það gangi örlítið betur en seinast...:)

Svo var loksins komið að okkur egyptunum að halda nemendakvöld í skólanum. Þemað var ákveðið, Kjendisparty eða Þekktar fígúrur/persónur. Kvöldið heppnaðist furðulega vel eftir hræðilega general prufu. Af einhverjum ástæðum var undirskrifuð sett í að stjórna tæknimálum.. sem tókst vel ótrúlegt en satt. Kvöldið var uppfullt af hallærislegu frægu fólki, ótrúlega merkilegum búningum, flottu prógrammi og mjöög löngum sturtum (sjá mynd)..

Fiona prinsessa í allri sinni dýrð! =D
..gettu hver ég var? :D

Upp á síðkastið hefur verið lítið um fjallgöngur þannig að þegar við loksins fengum að hlaupa upp á eins og eitt fjall í þar seinustu viku. Ótrúlega flott fjallganga. Byrjuðum í þykkri þoku en komum svo upp í yndislegt veður og ótrúlega fallegt útsýni yfir Örsta og fjörðinn. Myndir segja meira en ég get skrifað :)

 

Þokan mikla
Þokan mikla!


Komin yfir þokuna..

Farin að nálgast toppinn
Farin að nálgast toppinn :)

Komst ekki hærra =D
Fór eins hátt og ég mögulega komst.. :P

Nú er frábær fríhelgi á enda og ég alvarlega að íhuga að fara virkilega snemma að sofa. Við fórum stór hópur af fólki í einnar nætur bústaðarferð hér í grenndinni. 19 manns í 9 manna hyttu. Það var þröngt um fólk en gekk eins og í sögu og allir skemmtu sér vel... það er nú reyndar ekki neitt miðað við fyrstu bústaðarferðina þar sem allur skólinn gisti saman í 60 manna hyttu upp á fjalli. Þá þekktist enginn en allir komu nú heilir úr þeirri ferð. Af reynslu þá myndi ég ekki ráðleggja fólki með innilokunarkennd eða félagsfælni á háu stigi að fara í lýðháskóla, nema auðvitað til að komast yfir fóbíuna. ;)
Í dag eftir pizzuát og þrif á hyttunni hlupum við svo þrjá galvaskar stúlkur eins og fætur toguðu upp að veginum til að reyna að ná rútunni. Auðvitað þá kom rútan þjótandi framhjá okkur á fleygiferð og við sátum eftir ansi vonsviknar. Næsta rúta átti ekki að koma fyrr en fjórum tímum seinna...
Þarna stóðum við í náttbuxunum, með skærlitaðar prjónahúfur og fjallgöngubakpoka og íhuguðum hvort við ættum að labba eða húkka far.. Seinni valkosturinn hljómaði töluvert betur þar sem rúmir 15 km voru í skólann. Eftir að fjölmargir hálftómir bílar höfðu keyrt framhjá ákváðu við að gera eina tilraun til og hringja svo á leigubíl. Næsti bíll kom, við spenntum út þumlana og brostum eins fallega og við gátum og viti menn, hann stoppaði og skultaði okkur skrýtnu lýðháskólanemunum heim með glöðu geði. J

Reynslubankinn heldur áfram að bæta við sig og ég reyni að láta bjartsýnina vera í fyrirrúmi í sambandi við leiðinleg peningamál..

Olga Ingrid Heiđarsdóttir

Munnrćpa :)

24. október 2008 klukkan 22:49
Jæja, nú er bloggpásan yfirstaðin, gleðin að koma aftur á yfirborðið eftir smá sukk í kreppuáhyggjum og kominn tími á uppfærslu :)
Síðan seinast hef ég haft ýmislegt að dunda mér við.. haustfrí, timburvinnsla, prjónaskapur og sjónvarpsgláp, Danmerkurferð, 18 tíma ferðalag heim frá Danmörku, áttavilltir dagar í skóginum, letihelgi, allt of blaut hjólaferð og súrefnisfirrt köfun. :)

Eftir ótrúlega kósý en þó örlítið spooky viku í Ålvik vaknaði ég fyrir kl 06.00 á laugardagsmorgni og skundaði á strætóstöð. 10 tímum seinna labbaði ég út úr tollinum í Kastrup þar sem tvær svartklæddar stúlkukindur með skilti sem á stóð "Mr. Burgundy". Ég var búin að stressa mig upp við tilhugsunina að henda mér í lestarkerfið þarna úti þannig að það tók mig smá tíma að átta mig á því að þetta væru þær, komnar alla leið á flugvöllinn að sækja mig.. sætu stelpurnar mínar =D

Eftir frábæra stelpuhelgi með viðeigandi Olgueldamennsku, Sex and the City maraþoni og bæjarferð var Hulda komin með nóg af draslinu eftir okkur í litlu sætu íbúðinni og sendi mig heim. :P Hulda og Helga voru yndislegar og vöknuðu með mér kl 04.00 á þriðjudagsmorgninum og fylgdu mér að lestinni sem skutlaði mér upp á flugvöll. Mín beið 18 tíma ferðalag með lestu, flugvél og endalausri rútuferð. Ég fékk nægan tíma til að hugsa um alla leiðinlegu danina, sem eru búnir að taka upp alvaralega fordóma gegn Íslendingum. Mig grunar að danir hafi alltaf hugsað illa til okkar útaf íslenskri útrás í Danaveldi og haugum af Íslendingum sem flytjast til landsins og hafi nú loksins fengið afsökun til að láta þetta hatur til okkar í ljós. Þeir eru búnir að ákveða það að Íslendingar eru fátæklingar og glæpamenn til hópa... ekki ósvipað þeim skoðunum sem Íslendingar hafa myndað sér á til að mynda.. Pólverjum. Tók þetta mjög nærri mér og er sjálf búin að ákveða að Danir eru úrkynjaðir upp til hópa og það eigi að læsa þá alla inni... Skemmtilegt hvernig fordómar geta ferðast hring eftir hring og allir eru á móti þeim en enginn er saklaus af þeim..

Ég elska rútur.. 

 
Ég fann Halldóru á auglýsingaskilti í Danmörku :P

 
Kubbahimnaríki :) 

Eftir æsispennandi rútuferð með ótrúlegustu svefnstellingum og tilraunum til að prjóna eða lesa. Ég verð alltaf að reyna, þó ég viti að um leið og ég einbeiti mér að einhverju öðru en að glápa upp í himininn þá fer jafnvægisskynið út um gluggann..
Skemmtilegt var það samt að koma aftur í skólann þar sem fólk tók á móti mér með faðmlögum og brosum. Einhver hafði ákveðið það að ég myndi ekki koma aftur útaf ástandinu á Íslandi og fleiri höfðu greinilega fylgt með. Þegar ég lét svo sjá mig í skólanum fékk ég allavegana að sjá að fólk vill greinilega hafa mig hérna.. ég varð eiginlega smá hrærð :)
Einnig hef ég heyrt ýmsar lausnir á því hvernig ég á að borga skólann þannig að ég þyrfti ekki að hætta m.a. voru einhverjir að spá í að halda fjáröflun, sjálfboðastörf fyrir mína hönd og svo fékk ég eitt bónorð.. þar sem að ef ég giftist norskum ríkisborgara þá fæ ég rétt til að fá námslán. Þó mér hafi fundist þetta allt heldur róttækt.. nema bónorðið auðvitað.. þá ætla ég nú að reyna að redda þessu án þess að betla peninga eða gifta mig en það er alveg ótrúlegt hvað hlýjar mér að fólk sem ég þekki varla það vel sé til í að leggja svona mikið á sig fyrir mig.. 

í vikunni sem ég kom heim vorum við með "orientering".. ég veit, hljómar eins og eitthvað austurlenskt.. en er í raun það að okkur er hent út í skóg (látin hjóla, auðvitað) með áttavita, kort og 12 áfangastaði, sem við áttum að finna á tveimur tímum. Eftir spretthlaup, skokk, hopp, labb, haltur og sund (nánast í mýrinni sem var þarna..) sáum við Marina endastöðina í hyllingum. Eftir nánari athugun kom í ljós að þetta var ekki hylling heldur stóð kennarinn þarna, með stýrurnar í augunum eftir lúrinn í bílnum sínum, og tók á móti okkur. Hann skoðaði myndirnar sem við tókum af hverjum áfangastað og sendi okkur svo heim á leið, að sjálfsögðu hjólandi. Heita góða sturtan sem beið mín þegar ég kom heim var sú næst yndislegast á seinustu tveim vikum...
Yndislegustu sturtuna fékk ég þegar ég skreið upp stigann á mánudaginn eftir 26 km hjólaferð í GRENJANDI rigningu og mótvindi. Það sem merkilegt er að við hjóluðum hring.. en vorum með mótvind allan tímann. Rigningin byrjaði rétt áður en við lögðum af stað og var þá eins og helt væri úr fötu. Risa stórir dropar beint niður, korter inn í hjólaferðina byrjaði vindurinn og droparnir breyttust í högl sem boruðu sig inn í andlitið.. En eins og ég sagði.. YNDISLEG sturta! :)

Seinstu þrjá daga höfum við svo verið að dunda okkur við það að taka "fridykkingserfikat".. sem í beinni þýðingu er frjálsköfunarskírteinið :) Fyrsti dagurinn var bóklegur.. eða í raun bara maður að tala :)
Miðvikudaginn vorum við svo keyrð.. já KEYRÐ, í sundlaugina í Volda þar sem við fengum að æfa okkur að kafa. Laugin er fjögurra metra djúp þannig að þar var ýmislegt hægt að bralla. 
Einnig átti eitt af afrekum lýðháskólaársins sér stað þennan dag. Tvö stökk af fimm metra stökkbrettinu :)
Í fyrra skiptið náði ég að lenda snilldarlega á rassinum. Ég þakka fyrir að hafa verið í blautbúning þar sem að annars efast ég um að ég gæti setið í dag.. Af einhverjum ástæðum ákvað ég að prófa aftur og allt í gúddí. Merkilegt hvað svona stökkbretti virðast lægri þegar maður horfir neðan frá en niður frá þeim..:P 
Fimmtudeginum eyddum við svo í 9°C "heitum" sjónum, köfuðum eftir kröbbum og blýbeltum. Var í örlitlum erfiðleikum með þrýstinginn þegar maður er kominn lengra niður en vona að það lagist.. :) Þarna vorum við að kafa án súrefnis.. eða án auka súrefnis. Það tekur á að kafa með því að halda inn í sér andanum og eftir þessa tvo daga var ég alveg gjörsamlega búin á því.. Finnst yndilegt að vera þreytt útaf einhverju sem ég var að erfiða við í staðinn fyrir að vera svona langþreytt eins og maður á það til að vera eftir sjónvarpsglápið og kyrrsetuna heima. :)

Í dag var svo fituprósentumæling í einkaþjálfuninni og bóklega kennsla.
Ætlaði varla að þora í mælinguna en ætli það sé ekki ágætt að vita þetta bara :P Niðurstaðan kom reyndar örlítið á óvart þar sem ég bjóst við að ég væri byggð af 90% fituforða og 10% kóki :)... eða var það öfugt?

Á morgun sitjum við svo fyrirlestur um "Human Trafficing". Horðum á mynd um þetta í dag og það liggur við að manni kvíði fyrir fyrirlestrinum. Þetta er eitt það hryllilegasta sem ég get hugsað mér. Það er bara svo erfitt að átta sig á því hvernig mannskepnan getur verið svona illkvittin..

Æðislegt! Búin að blogga AFTUR.. þar sem ég var búin að skrifa álíka langt blogg áðan og var að fara að setja endapunktinn á þegar tölvan mín ákvað að það var ekkert sniðugt að hafa vafrann opinn lengur..
Afhverju lærir maður ekki? .. núna geymdi ég samt afrit af blogginu, þegar maður gerir það þá gerist auðvitað aldrei neitt.
Sat í sjónvarpsherberginu og blótaði tölvunni á íslensku. Fólkið hér hélt ég væri farin að tala tungum :P

Langar að lokum að deila með ykkur sem ekki hafið séð þetta í fréttunum á mbl.is. Ég ætla rétt að vona að þetta sé ekki álit allra norðmanna á íslendinum og þar á meðal yours truly...

http://www.youtube.com/watch?v=HvlDFKWRj0g

Kveðja
Olga verðandi Górilla á Halloween kvöldi á morgun :P
 
Olga Ingrid Heiđarsdóttir

..varablogg

20. október 2008 klukkan 22:45
...ætlaði loksins að blogga. Byrjaði á því að reyna að setja inn myndir til að nota í bloggið, það er hingað til búið að taka klukkutíma og ég er ekki enþá viss um að það hafi tekist...

Þolinmæðin er á þrotum og ég er farin að sofa.. þar sem ég þarf að vakna klukkan 7 í fyrramálið til að skúra ganginn fyrir framan herbergið mitt.. úff

What?

Kemur eitt hresst blogg á næstu sólahringum.. ég lofa! 
Þetta gengur ekki :P

kv. Olga þolinmóða 
Olga Ingrid Heiđarsdóttir

Prjónaskapur og peningaáhyggjur..

06. október 2008 klukkan 22:20
Ég fékk sjokk þegar ég kíkti inn á heimasíðu glitnis í kvöld. Norska krónan hefur hækkað um 9,04 %, sem er væntanlega vegna þess að íslenska krónan lækkaði um heilan fáránlegan helling... 
Virðist vera svo að ég hafi ekki getað valið mér betri tíma til að fara í Lýðháskóla og ég veit ekki hvað gerist næst.. Almáttugur hvað þetta er hræðilegt ástand.

ZzZzZz..
Orðnar leiðar á rútuferðum? :P

Sjór :)
Úr seinustu ferðinni fyrir haustfríið :)

Annars er ég eiginlega alveg búin á því eftir fyrsta vinnudaginn í tvo HEILA mánuði! Var kölluð til vinnu í morgun og fékk að vita að nú ætti ég að taka til og að borka?.. Hafði því ekki hugmynd um hvað beið mín þennan dag og skundaði út í óvissuna klædd mörgum lögum af ull og pollagalla. Eftir heilan dag af því að bera trékubba um allan völl og skera börkinn af.. (svo það er þaaað sem að borka þýðir!) sit ég hér í litla (stóra) sæta húsinu okkar í Vikedal og hlakka til að skríða upp í rúmið, sem er svo miklu stærra en rúmið mitt í skólanum. Er að njóta þess í botn að hafa nóg pláss.. hef það notalegt með tvær sængur og fimm kodda í tvöföldu rúmi =D

Í gær bakaði ég brownies aaalveg ein =D... og borðaði þær líka, alveg ein! :S

Annars hef ég það bara yndislegt hérna. Sit hér á kvöldin fyrir framan arininn, í ruggustólnum hennar mormor og prjóna eins og ekta lýðháskólanemi. Verð samt að viðurkenna að sjónvarpið fær að vera á öllum stundum ef ekki nema til að hafa smá "eðlileg" hljóð á í húsinu.. til að yfirgnæfa allt knirkið og brakið sem er létt að ímynda sér að sé eitthvað spooky. Akkúrat núna þegar ég skrifaði þetta var eins og einhver hefði opnað útidyrahurðina...:S En ég MAN að ég læsti henni, þannig að ég hækka bara í sjónvarpinu og gríp í einn prjón til að hafa í hendinni.. bara svona til öryggis :P

Hlakka til þegar það er komið rafmagn í allt húsið, gardínur fyrir gluggana í stofunni og meira fólk til að halda manni félagsskap. :) Verð líka að muna að ná í eldivið á morgun.. þar sem af einhverri ástæðu ég þori ekki að ná í núna í myrkrinu.. 

Fyrir þá sem ekki vita þá er ég í haustfríi og búin að koma mér fyrir í gamla húsinu þar sem mormor og besten áttu heima, þar sem mamma var alin upp. :) Þriggja hæða hús í pínu litlu þorpi. Cirka 3 km í næstu búð og nokkrir klukkutímar á milli rútanna sem fara á milli. Þessa viku er ég að vinna hjá smið, sem býr hér nálægt. Timburvinnsla er málið þessa viku.. án efa ein af þyngri vinnum sem ég hef prófað!
Hafði smá áhyggjur af því að það yrði spooky að búa hér ein, sérstaklega þegar það er orðið alveg biksvarta myrkur á kvöldin og nóttunni en er samt búin að hafa það ekkert smá notalegt.. fyrst í kvöld sem mér finnst þetta vera eitthvað spooky. 
Þá þýðir ekkert annað en að harka þetta af sér skunda út í skúr, sækja eldivið, kveikja í arninum og halda áfram að prjóna.. :P

Andinn kom ekki alveg yfir mig í bloggdeildinni í þetta skiptið...
Kv. Olga einbúi

Olga Ingrid Heiđarsdóttir

Enn ein vikan yfirstađin..

28. september 2008 klukkan 21:47
Mikið rosalega líður tíminn hratt hér! Bara örfáir dagar í haustfrí!

Seinasta vika fór í eitthvað sem norðmenn kalla "kystfriluftsliv".. finn ekki rétta orðið yfir það á íslensku.. Sjómennska, er það eina sem mér dettur í hug.. en það á svo engan veginn við. :P

Okkur var fergjað yfir á eyju hér út í firðinum þar sem tóku við þrír dagar af því að róa bátum, veiða, snorkla og hafa það kósý við bál og í tjöldum. Á mánudeginum hjóluðum við rúma 15 kílómetra þar sem báturinn tók við okkur og sigldi með okkur yfir spegilsléttann sjóinn að eyjunni. Þar komum við okkur fyrir í tveimur stjórum hermannatjöldum og gengum hring um eyjuna til að sjá hvar klósett (mjöög illa lyktandi kamar), naust, bátar og fleira var..
Svo átti mín að læra að róa! Í annað skipti síðan ég kom hingað fékk ég að reyna að róa bát. Í þetta skipti árabát þar sem tveir róa í einu. Og viti menn, það gekk bara ekki sem verst. Ekki nema örfáir árekstrar við hina bátana og langar vegalengdir í áttur og hringi.. tókst mér loksins að samhæfa handleggina og stefna í rétta átt. Við rérum út og settum garn og teina og vonuðum það besta. :)
Eftir það var eldaður dýrindis pastaréttur á prímusum og haldið hinum megin á eyjuna þar sem tendrað var bál og steiktir marshmallows. :) Reyndum líka að raka eftir kröbbum en það gekk nú ekki neitt...

Daginn eftir tók alvaran við. Þá var að koma sér í blautbúningana! Almáttugur, það er ekki eitt af því auðveldasta sem ég hef gert. Orðum það þannig að þar kom við sögu blóðleysi, öndunarerfiðleikar, barnaolía og átök sem líktust ekki neinu sem þið hafið séð áður.. og ekki var auðveldara að komast úr!
Þar sem ekki var sturta á eyjunni reyndi ég að skola það mesta af babyolíunni úr hárinu í ísköldum sjónum og flýtti mér svo að dúða mig í ull til að ná í mig hitanum aftur. Blautbúningurinn virkaði hins vegar vel og það var ekkert kalt að snorkla í sjónum. Ég hef hins vegar ákveðið mig að skila honum og bíða betra gengis íslensku krónunnar eða kaupa heima og fá sendan hingað... gat ekki hugað mér að eyða svona miklum pening í hlut sem ég nota þetta sjaldan.
Eftir þetta ævintýri rérum við út eftir garninu og í ljós komu heilir þrír fiskar og fullt fullt af risa stórum kröbbum. Settum garnið og teinana út aftur og þegar þeir voru sóttir aftur kom í ljós einn RISA humar.. 
Um kvöldið fengu krabbarnir og humarinn þau sorglegu örlög að hafna í potti af sjóðandi vatni við bálið... Þar var svo veisla með krabbakjöti og humar fyrir alla... smakkaði líka einhverjar merkilegar skeljar (sem btw. ég veiddi allar sjálf..) sem smökkuðust meira eins og strokleður en eitthvað góðgæti úr sjónum....
Ekkert smá kósý bálstemmning (eins og svo oft áður) með gítarspili og misfallegum söng. :) Það versta er að lögin sem eru sungin eru eiginlega mest lög á norsku sem ég hef aldrei heyrt áður... þannig að oftast sit ég bara og þykist syngja með, gef frá mér mörg merkileg hljóð eða syng eitthvað annað á íslensku, hinum til mikillar skemmtunar. :P

Seinni nóttin var svo heldur kaldari en fyrri.. mjög líklega vegna þess að ég er (var) með ansi mikið hár sem neitar að þorna... Seinasti dagurinn fór svo mest í tiltekt og slíkt. Fyrir utan að við fengum að prófa að róa sexæringi (held ég að það heiti)... hefði aldrei grunað að það væri svona erfitt að róa. Lítur út fyrir að vera pís of cake. En núna er ég enn einni reynslunni ríkari og veit jafnvel muninn á styrbord og babord.. en það versta er að ég veit ekki hvað neitt af því sem ég lærði heitir á íslensku :P Auðvitað fórum við svo líka í "topptur"... þrátt fyrir að hæsti toppurinn á eyjunni hafi bara verið 36 m fyrir ofan sjávarmál. Hehe, urðum að fara samt...

Hér er hópurinn upp á hæsta fjalli Yksnöya, 36 m..


Á fimmtudaginn var svo myndatökudagur. Bjóst við leiðinlegum degi af gervibrosum og pínlega lélegum myndum en það var heldur betur ekki svoleiðis. Bekkjarmyndin samanstóð af fólki í alls konar múnderinum m.a. blautbúningum, strákar í kjólum, fólk hangandi niður úr trjám, snjóbrettamúnderinum (ég..), kameldýrum og einum happy kennara með túrban á hausnum að reykja vatnspípu! :)
Einstaklinginsmyndin má svo bíða betri tíma, veit ekki hvernig hún kemur út...
Að tilefni myndatökunnar fór ég í klippingu daginn áður og losaði mig við heilan helling af hári :) 
Er núna með sítt að afta :P

Pamela og Hasselhoff
Pamela og Hasselhoff

Kynnar kvöldsins
Kynnar kvöldins

Pálmatréin sætu :)
Pálmatréin sætu :P

Í gær var Hawaii kvöld í skólanum. Sumir nýttu tækifærið og sprönguðum um í sem minnstum fötum, aðrir voru algjörir snillingar í búningagerð m.a. pálmatré og sveittur, sólbrenndur túristi. Ég var ekki alveg svo hugmyndarík og klæddist stuttbuksum, litríkum bol, með sólgleraugu og blóm í hárinu. :) Kvöldið samanstóð af leiknum baywatchþætti, brimbrettakeppni, bananaáti og strákum útötuðum í babyolíu að dansa húlahúla.

Sveittur túristi! :P
Sveittur túristi á Hawaii :P


Naut þess að sofa eins lengi og ég gat í dag og nýtti daginn vel í prjónaskap og nú heilt blogg.
Á morgun verður það væntanlega kajakkferð og blakæfing, hlakka til þar sem ég hef misst af æfingu seinustu tvö skiptin útaf ferðum! :(

Olgígbolg
Olga Ingrid Heiđarsdóttir